Nýtt úr skólastarfinu:
Skóli settur Prenta Senda tengil
mánudagur, 23 ágúst 2010 10:51

Öskjuhlíðarskóli var settur í Fossvogskirkju í morgun í 36. skipti.  Jóhann A. Kristjánsson, skólastjóri, flutti ræðu, þar sem m.a. kom fram, að nemendur við skólann yrðu 81 næsta skólaár.  Að hefðbundnum hætti voru nokkur lög sungin undir stjórn Ólafs B. Ólafssonar, tónmenntakennara, en síðan lesið í bekki og gengu nemendur og starfsmenn til skóla að því loknu.  Eftir að nemendur höfðu fengið stundatöflur í stofum sínum var boðið upp á pylsur og drykki í góðu veðri á skólalóð.  Skólaárið 2010 – 2011 hefst svo samkvæmt stundaskrá á morgun, þriðjudag 24. ágúst.  Myndir frá morgninum má finna í myndasafni

 
Skólasetning Prenta Senda tengil
laugardagur, 14 ágúst 2010 09:57

Öskjuhlíðarskóli verður settur fyrir skólaárið 2010-2011 23. ágúst nk. kl. 10:00 í Fossvogskirkju.

Mataráskrift og mjólkuráskrift fyrir nemendur þurfa foreldrar að panta á netinu á Rafræn Reykjavík.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 51